Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

Mál nr. 583/2022

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 583/2022

Föstudaginn 28. apríl 2023

A

gegn

Barnaverndarnefnd B

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Guðfinna Eydal sálfræðingur.

Með kæru, dags. 29. nóvember 2022, sem barst úrskurðarnefnd velferðarmála með tölvupósti, kærði A, úrskurð Barnaverndarnefndar B um lokun máls.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kæra barst úrskurðarnefndinni með tölvupósti 29. nóvember 2022. Með tölvupóstum úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 7. desember 2022 og 30. desember 2022, var þess óskað að kærandi legði inn skriflega kæru til nefndarinnar, auk gagna málsins. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 5. janúar 2023, var þess óskað að kærandi fyllti út sérstakt kærueyðublað og sendi úrskurðarnefndinni. Þá var þess einnig óskað að hún sendi úrskurðarnefndinni afrit af hinni kærðu ákvörðun. Kæranda var einnig bent á að hægt væri að fylla út kærueyðublað rafrænt á vefsíðu nefndarinnar. Kæranda var veittur frestur í 14 daga til að skila inn til nefndarinnar umræddum gögnum. Kærandi fékk einnig umrætt bréf sent í tölvupósti. Þann 7. janúar 2023 var haft samband við kæranda símleiðis og óskað eftir að hún skilaði inn kæru og gögnum. Kærandi kvaðst þá ekki ætla gera það fyrr en hún væri tilbúin til þess en gat ekkert sagt til um hvenær það yrði. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. febrúar 2023, var kæranda send ítrekun um skil á skriflegri kæru, auk nauðsynlegra gagna, og var veittur 14 daga frestur í þeim efnum. Var kærandi jafnframt upplýstur um að bærust gögnin ekki innan frests mætti hún búast við því að kæru hennar yrði vísað frá úrskurðarnefndinni. Umbeðin gögn hafa ekki borist.

 


 

II.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Þannig er grundvöllur þess að unnt sé að leggja fram kæru til úrskurðarnefndar að fyrir liggi stjórnvaldsákvörðun. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 5. gr. laga nr. 85/2015 er kveðið á um kærufrest en þar segir að stjórnsýslukæra skuli berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Í barnaverndarlögum segir í 1. mgr. 51. gr. að aðilar barnaverndarmáls geti skotið úrskurði eða ákvörðun samkvæmt 6. gr. til úrskurðarnefndar velferðarmála innan fjögurra vikna frá því að viðkomandi var tilkynnt um úrskurð eða ákvörðun.

Þar sem kærandi hefur hvorki lagt fram undirritaða kæru né brugðist við beiðni úrskurðarnefndarinnar um að leggja fram afrit af hinni kærðu ákvörðun getur nefndin ekki lagt mat á hvort framangreind kæruskilyrði séu uppfyllt. Að því virtu verður ekki hjá því komist að vísa málinu frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Erindi A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum